30 desember 2003
Eins og sumir hafa eflaust tekið eftir þá hef ég tekið mér bloggpásu. Ég er jafnvel að pæla í að hætta bloggi algjörlega. Orsök þessarar pásu má rekja til neikvæðnis bylgna sem hafa farið mikið um mig undan farið og þær sannfæra mig um að allar blogghugmyndir sem ég fæ séu ömurlegar. Neikvæðnis byljurnar koma líka upp neikvæðum hugmyndum í kollinum á mér og ég held að fólk nenni ekki að lesa eitthvað neikvæðnis eða nöldur blogg.

Svona lít ég gjarnan út þegar ég er neikvæður.
22 desember 2003
Sífellt fáum við hvað að heyra hvað við erum heppinn að lifa í lýðræðislegu ríki þar sem við fáum að kjósa. Sífellt fáum við að heyra hvað aðrar þjóðir hafa það slæmt því að þær lifa ekki í lýðræðisríki. Í barnaskóla var manni kennt sú útópíska skýring að orðið lýðræði þýði það að fólkið ræður landinu sínu með því að kjósa. En hverju ræður fólkið í landinu?
Tökum sem dæmi Bandaríkin. Ég hef heyrt mismunandi prósentutölur yfir hve mörg prósent Bandaríkja manna kusu Bandaríkja forseta. Ég hef heyrt tölur allt frá 12%. Maður hefur líka heyrt Íslenendinga hlægja yfir því að hann fékk ekki einu sinni 50% greiddra atkvæða. Ég er að vísu ekki alveg með kosningakefi Bandaríkjanna á hreynu en þar er mjög flókið kerfi með kjörmönnum sem mér skillst að sé ekkert svo réttlátt.
En skoðum þá lýðræðis kerfi Íslands. Bráðum mun Halldór Ásgrímsson verða forsætis ráðherra sem er æðsta embætti Íslands. En það voru einungis 17,7% kjósenda sem kusu flokkinn hans (það eru einmitt 11,4% íbúa íslands). Þess má einnig geta að flokkurinn hanns, Framsóknarflokkurinn hefur 19% þingsæta. Svo má líka taka fram að í síðustu kosningum voru 3894 manns á bakvið hvern þingmann í suð-vestur kjórdæmi en aðeins 1871 á bakvið hvern þingmann í norð-vesturkjördæmis. Þetta þýðir einfaldlega atkvæðisvægi kjósenda er síður en svo jafnt. Já og ég veit að það eru svokallaðir jöfnunar þingmenn sem eiga að laga þennan mismun en þau gera aða að mjög takmörkuðu magni. Sem dæmi má nefna: að 51,7% kjósanda kusu ríkisstrjórnarflokkana en ríkisstjórnar flokkarnir fengu 54% þingsæta. Til gamans má geta að á höfuðborgarsvæðinu (þar sem 63% af kjósendum landsins eru) fengu ríkisstjórnarflokkarnir 49,9% atkvæða en 53,5% atkvæða af landsbyggðinni.
All animals are equal, but some animals are more equal than others.
George Orwell. Animal Farm.

Þessi maður mun brátt gegna valdamesta embætti Íslands en var einungis kosin af 17,7% kjósanda (11,4% þjóðarinnar).
19 desember 2003
Inngangur
Ég var að framkvæma smá sjálfsskoðun og ég komst að því að það er örugglega ekki hægt að vera sjálfselskari heldur en ég.
Tilgangur
Að verða meðvitaðri um sjálfan mig og kynnast mér betur svo mér gangi betur að díla við sjálfan mig
Framkvæmd
Sjálfsskoðunin fór þannig fram að ég reyndi að finna uppáhaldshlutina mína og niðurstöður voru þessar.
Niðurstöður
Uppáhalds bloggsíða = bloggsíðan mín.
Mér finnst bloggsíðan mín lang skemmtilegasta bloggsíðan sem ég veit um. Hún gefur mér messta fyllingu í lífið. Ég held að málið sé að mér finnist skemmtilegra að segja sjálfur frá einhverju kjaftæði heldur en að lesa kjaftæði annara. Hafiði ekki lent í því að eiga samtal þar sem báðir aðilum finnst rosalega gaman að tala sjálfir en hvorugur hefur gaman af því að hlusta á hinn?
Uppáhalds hljómsveit = Hljómsveitin sem ég er í
Ég held að mér finnist líka skemmtilegra að spila sjálfur tónlist en að hlusta á aðra spila tónlist. Mér finnst langmessta skemmtannagildið í því að hlusta á diska með hljómsveitinni minni.
Uppáhalds gítarleikari = Jón Þór
Sko, þarna valdi ég ekki sjálfan mig því að ég hata sjálfan mig sem gítarleikara. Hins vegar er uppáhalds gítarleikarinn minn hinn gítarleikarinn í hljómsveitinni minni. Drengurinn er bara svo fokking mikill snillingur.
Sömuleiðis er uppáhalds trommarinn og bassaleikarinn minn, trommarinn og bassaleikarinn í hljómsveitinni minni.
Fallegasti og vænsti kvennmaður sem ég veit um = Hver önnur en konan mín
Mér finnst konan mín bara miklu vænni og fallegari kostur en aðrar konur. Einnig er systir mín og mamma mín í miklu uppáhaldi hjá mér. Þess má geta að þær eru allar í fæddar í sporðdreka merkinu. Ef þið hafið heyrt um lag sem heitir "scorpions" þá má setja samasem merki þar á milli, skiljiði.
Lokaorð
Ég verð að viðurkenna að þessar niðurstöður koma mér svolítið mikið á óvart því ég hef ekki litið á mig sem mjög sjálfselskann og egosentrískann mann. Ég veit ekki hvort þessi skoðun sé algjörlega út í hött hjá mér. Hugsanlegt er að aðrir hafi tekið eftir þessari sjálfselsku minni.

Það er hægara sagt en gert að kafa inn í hugarheim sinn og kanna landslagið þar.
18 desember 2003
16 desember 2003
Ég hef aldrei skilið þvagvenjur hunda. Þeir pissa rosalega oft og rosalega litlu í einu en geta sleppt því að pissa í fleiri tíma. Sumir vilja meina að hundar séu allltaf að merkja sér svæði með því að pissa út um allt en hvað meina hundar eiginlega með því að merkja sér svæði.
Hvað gerir hundur ef hann finnur lykt af annars hunds pissi (þ.e.a.s ef hann kemur á "svæði" annars hunds)? Neitar hann að fara inn á svæðið? Ég hef aldrei séð hund sem vill ekki fara inn á ákveðið svæði. Nei, eftir því sem ég veit best þá pissar hann bara sjálfur þar. Og tilhvers gerir hann það, svo að næst þegar það kemur einhver annar hundur þá geti hann pissað þar.
Halda kanski hundar að ef tík finnur víða lyktina af pissinu þeirra sem víðast að hún hugsi: "Úú hvað þessi hundur er búinn að pissa svo víða. Hann er svaka hetja. Ég vil sko eignast hvolpa með honum". Ég skal ekki segja til um það en ég held að (kk) hundar viti alveg jafn lítið um hvernig tíkur hugsa og karlmenn vita um hvernig konur hugsa.
Það er kanski þetta sem skilur greind dýr frá öðrum dýrum. Greindar dýrategundir hafa það sameiginlegt að karldýrið veit ekkert hvernig það á að ganga í augun á kvenndýrinu og gerir mis asnalegar tilraunir til þess. Karldýrin vita líka ýmislegt en samt nánast ekkert um hugarheim kvenndýranna.

Greyið hundurinn lifir í þeim misskilning að hann fái tíkur ef hann pissar út um allt.
13 desember 2003
Ég er búinn að spila á tónleikunum sem ég sagði frá hér á undan. Þeð gekk stórslisalaust en smáslisin voru mörg en það kom eiginlega ekki að sök. Við vorum geðveikt flippaðir og fyndnir í fatavali (fannst okkur). Ég og Steingrímur (bassaleikari) vorum báðir í svörtum batmanbol (greyjið Þura að missa af því) og bláum gallabuxum en Addi (trymbill) og Jón Þór (gítarséní) voru báðir í brúnum flauelsbuxum og í hvítum bol með bláum ermum. Það fannst okkur sjálfum mjög sniðugt og flippað. Ég einn söng og spilaði lagið don't speak eftir hljómsveitina nodoubt meðan JÞ og SÞ leystu tækni vandamál og tileinkaði það Svenna.
Svenni fær að vera maður dagsins á þessari bloggsíðu og fær mikið hrós fyrir að hafa verið duglegur að mæta á tónleika. Þessvegna fær hann þann heiður að þessi bloggfærsla er nefnd í höfuðið á honum, en auðvitað er það Orra son þar sem ég er faðir þessarar bloggfærslu sem og allara annara bloggfærslna á þessari síðu. Atli Viðar og Ingi Einar fá líka hrós auk Svenna fyrir að skapa skemmtilega stemmningu á tónleikum ásamt fleirum sem mæta þó ekki alveg jafn oft. En það er betra að mæta ekki alveg jafn oft en að mæta aldrei (taki þeir til sín sem eiga (þeir sem eru í útlöndum eru afsakaðir)). AV og IE hafa líka verið einkar duglegir að mæta á tónleika og fá auðvitað líka hrós fyrir það. Húrra fyrir SE, AV og IE.
Annars þá finnst mér fólk ekki vera nógu duglegt að skrifa komment. Mér finnst komment vera svona staðfesting á að einhver sé búinn að lesa færsluna og hika stundum við að gera nýja færslu því að ég er ekki búinn að fá nógu mörg komment á þær færslur sem eru fyrir.

Á þessari mynd má sjá Svenna vera að leika lystir sínar á mótórhjóli. Enginn kom þó í grímubúning á tónleikana.
11 desember 2003
Á morgun er ég, og hljómsveitin mín Isidor, að fara að spila á tónleikum á hollenska barnum De Boomtiiker (hvernig sem það er nú skrifað), ásamt hljómsveitunum Invortis og Touch sem ég veit voða lítið um.
Það er aldrei að vita nema að þið rekist á þennan mann í vín búningnum sínum á tónleikunum. Allir sem mæta í grímubúning fá lag tileinkað sér.
Allir eiga setja sér markmið einhverntíman á lífsleiðinni (minnstakosti margir). Fólki gengur misvel að fylgjaeftir markmiðum sínum og ná þeim. Þegar markmið eru sett skal gæta að þess að það sé raunhæft en ekki allt of auðvelt. Ef vinna á skipulega að markmiðinu þarfmaður að setja sér skamtíma og langtíma markmið. Ég hata þegar fólkið notar orðið takmark þegar það á við markmið. Halldóra íslenskukennari segir að það megi nota orðið takmark eins og markmið. Ég ætla að byrta hérna skammtíma markmið mín í lífinu
- Vera minna í tölvunni.
- Lesa meiram, helst klára bókina.
- Æfa mig meira að spila á gítar. (Ég hef þegar náð svolitlum árangri á því sviði. Búinn að taka ágætis æfingar síðustu daga. Ekki frá því að ég hafi skánað pínku).
- Mæta á réttum tíma í vinnuna en ekki 5 mínútum of seint eins og ég er vanur.
- Borða meira, oftar og reglulegar.
- Taka lifin mín þegar ég vakna.
- Taka smá meira til í herberginu mínu. (ég tók smá til í gær).
Þetta eru markmiðin mín fyrir næstu vikuna. Þau eru ekki mörg en ég tel þau raunhæf. Til að standa við markmiðin sín er gott að skrifa þau niður og láta aðra vita af þeim því þá finnst manni maður ekki bara vera að svindla á sjálfum sér heldur líka á öðrum.
Jæja, nóg komið af markmiða heimspeki. Setjið ykkur markmið.

Þessi teikning sýnir mjög óraunhæft markmið sem er ekki hægt að ná, sama hversu markvisst maður vinnur að því.
08 desember 2003
Góðgerðartónleikar og styrktartónleikar eru orð sem allir hafa heyrt töluvert oftar en einu sinni. Orðin eru notuð yfir það þegar tónlistarmenn gefa vinnu sína í þágu góðgerðarmáls. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að tónlistarmenn sé ein gjafmildasta stétt í heiminum ef ekki sú gjafmildasta. Sumir segja: "Það er allt í lagi að tónlistarmenn gefi vinnuna sína eða vinni rosalega mikið fyrir skítalaun á fáranlegum tímum því að tónlistarmenn eru að gera það sem þeim finnst gaman". En ég er mjög viss um að tónlistarmenn sé ekki eina stéttin sem finnst gaman í vinnunni þótt að það sé vissulega til fólk sem er í hundleiðinlegum vinnum. Afhverju eru t.d. ekki haldnir góðgerðar íþróttarleikir þar sem ágóði miðasölu rennur til góðgerðamála (ég veit að það er einusinni á ári í englandi að sigurveri deildarkeppninnar keppir við sigurvegara bikarkeppninar í þágu góðgerðamála). Það myndu mæta múgur manns á góðgerðarleiki milli KR og Vals í fótbolta, FH og Hauka í handbolta og fullt af öðrum góðgerðaríþróttaleikjum. Ég spyr afhverju geta ekki íþróttamenn gefið vinnu sína einusinni til tvisvar á ári í þágu góðgerða ef tónlistarmenn geta það. Það heldur því enginn fram að íþróttamönnum finnist leiðinlegt í vinnunni sinni. Það væri líka hægt að láta alla borga í bílastæði allstaðar í miðborginni á menningarnótt, stöðumælaverðinnir gætu gefið vinnu sína og allar stöðumælasektir og bílastæðapeningur myndu renna til góðgerðarmála.
Ég skora á allar stéttir landsins til að gefa ca. 5 tíma vinnu á einhverjum fáranlegum tímum (góðgerðartónleikar eru yfirleitt haldnir á fáranlegum tímum). Það myndi líka koma vel út fyrir fyrirtæki. Það myndi örugglega koma umfjöllun í moggann ef starfsmenn fyrirtækis gæfu fimm yfirvinnustundir til góðgerðamála einhvern daginn. Ég sé fyrir mér frétt: "Allir starfsmenn Sjófáalmennra unnu allir milli kl. 18 og 23 á laugardagskvöldið og gáfu yfirvinnulaun sín til góðgerðarmála." það kæmi mjög vel út fyrir fyrirtækið ef það myndi standa fyrir þessu og það kæmi líka vel út fyrir góðgerðarmálið sem fengi ágóðan.

Þessi skrifstofustarfsmaður vinnur þrjú laugardags kvöld á ári í þágu Amnesty international. Förum eftir fordæmi hans.
06 desember 2003
Take the Country Quiz
You're North Korea!
Look out! You're absolutely wacko. Completely insane.
There's no telling what you're going to do, and it could make you a danger to
yourself and others. People are so scared of you that they usually just cover
their eyes and pretend you're not there. The main impact this has had is to
make you even more scary, as you yearn for attention and contact with the outside
world. Everyone just wants you to calm down.
05 desember 2003
Jæja, núna ætla ég að fara að tala um Idol (sem ég kýs að bera fram ídol).
Fyrst spyr ég: Afhverju er þetta svona fáranlega vinsælt?
1. Þetta er svo rosalega hypað.
2. Fólki finnst gaman að horfa á aðra missa sjálfsvirðingusína í sjónvarpinu.
3. Fólki finnst gaman að horfa á keppnir í sjónvarpinu.
4. Þetta er sjónvarpsefni sem býður upp á umræður og ef margir horfa á það og tala um það þá verða allir að horf til að geta tekið þátt í daglegum umræðum í samfélaginu.
5. Simmi og Jói eru svo fyndnir. Þeir eru lang flottastir...
Að vísu eru bara góðir keppendur eftir núna þannig að svar 2 gæti dottið út en ef einhver klúðrar einhverju eða mistekst þá er ekkert skemmtilegra.
Núna er uppáhalds keppandinn minn dottinn út og bara leiðinlegir keppendur eftir. Þeir eru mjög góðir og færir en mér finnst ekkert skemmtilegra að sjá þetta heldur en að hlusta á útvarpið eða e-ð.
Jóhanna Vala er án efa uppáhalds keppandinn minn. Eini keppandinn með einhvern karakter og líf í sér. Hinir fara bara eftir einhverjum leiðinda klisju formúlum. Vala var líka minnst poppuð og ég er ekkert sérlega hrifin af popp tónlist.
Vala, ef þú lest þetta þá finnst mér þú vera æði og ég hlakka til að sjá og heyra í þér í framtíðinni. Ef þig vantar gítarleikara máttu endilega hafa samband við mig því ég gæti vel hugsað mér að starfa með þér.
Ég kaus þig og mér finnst þú sætust af keppendunum.
Svo er það hann Helgi. Í kvöld átti hann einstaklega slæman dag þótt að hann hafi sungið mjög fallega. Hann söng líka lag sem mér finnst ömurlegaleiðinlegt. Ég er með smá kenningu um að Helgi sé búinn að fá leið á því að vera stjarna og langar að lifa gamla Helga lífinu sínu og hafi þessvegna villjandi klúðrað þessu.
Helgi, ef þú lest þetta, Hertu upp hugann drengur. Það er bara eðlilegt að eiga slæma daga. Allar poppstjörnur eiga sína slæmu daga, því að poppstjörnur eru mannlegar eins og þú. Mundu að þú ert manneskja þótt að heimurinn komi kanski ekki fram við þig eins og jafningja sinn. Ég vona innilega að þú vinnir keppnina. Ég vona að ég vinni er á spænsku: "Espero que gane." samkvæmt þýðangar vél altavista.com.
Ég kaus þig ekki í þetta skiptið (ég hef samt einu sinni kosið þig) því að ég treysti á að hinir myndu gera það. Ég taldi að Vala þyrfti meira á atkvæðinu mínu að halda en því miður reyndist það henni ekki vera nóg.
og að lokum:
Sessý, ef þú lest þetta. Það var vilji guðs að þú verðir ekki popp stjarna. Það er best fyrir barnið þitt. Það fer ekki vel saman að vera poppstjarna og móðir. Poppstjörnur eins og Michael Jackson og Madonna eru með fóstrur í vinnu til að ala upp börnin sín og sjá þau ekki mikið sjálf. Eins og oft hefur komið fram þá synguru mjög vel og þú skalt leyfa barninu að njóta sönghæfileika þinna. Það er nógu mikið af góðum söngvurum í heiminum sem við hin getum notið. Gangi þér vel með barnið.
Á þessara mynd má sjá talsmann kínversku mafíunar vera að búa til velgengisdrykk handa uppáhalds idol keppandanum sínum. Heyrst hefur að þegar sá keppandi vinnur keppnina mun hann í textum sínum vera með áróður sem er kínversku mafíunni í hag.
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst að sumir drykkir passi best með ákveðinni tónlist. Ég hef ákveðið að gera lista yfir hvaða tónlist passar með hvaða drykkjum
Kaffi:
Mér finnst jazz passa einkar vel með kaffi. Þegar ég fer á djasstónleika út í bæ fæ ég mér oftast kaffi en ekki bjór eins og aðrir. Djass er náttúrulega ansi vítt hugtak og þessvegna finnst mér kaffi fara misvel með mismunandi djassi. Kaffi er líka gott með rólegri dægurtónlist með karakter eins og tildæmis Megas og Belle og Sebastian.
Mjólk eða kakó:
Mjólk eða kakó finnst mér ekki fara vel með neinni tónlist er þó alltílagi að njóta með jólalögum ef smákökum er bætt við. Hinsvegar eru langflest jólalög sem maður heyrir svo mikið leiðinda rusl.
vatn:
Passar ekkert betur með neinni einni tónlist eða annari. Hinsvegar nýtur maður tónlistarinnar betur ef maður fær sér vatn ef maður er þyrstur eða þurr í munninum.
Bjór:
Það sem mér finnst besta tónlistin með bjór er Sonic Youth. Það er eitthvað við Sonic Youth sem mér finnst kalla á kaldan bjór. Líka ef ég ætla að fá mér bjór og hafa það kósí og velja tónlist til að auka ánægjuna dettur mér alltaf fyrst í hug að setja á Sonic Youth. Háfær rokktónlist (t.d. Led Zeppelin) passar líka mjög vel með bjór.
Píkusafar (eins og baccardi breezer og woodys og wildbrew):
Ég er ekki mikill unnandi píkudrykkja en þeir gera píkutónlist mun þolanlegri. Ef maður þarf að hlusta á írafár, skímó eða svörtumfötum þá eru píkudrykkir málið.
Léttvín:
Klassísk tónlist helst rómantísk og sæturjazz eins og tildæmis Chet Baker.
Eitur sem er drukkið í þeim tilgangi til að eyða lífi manns:
Ég myndi velja Radiohead. Annars þá gaf einhver út plötu sem hét "music to commit suicide with".
Auðvitað eru líklega flesstir ósamála mér hvað eitthvað að þessu varðar en kanski ekki meðvitað fyrr en nú. Ég vona að þetta yfirlit hjálpi ykkur að pæla í því hvaða tónlist passar með hvaða drykk fyrir ykkur.
Þessi maður hlustar á jazz með kaffinu sínu.
04 desember 2003
Jæja, núna er ég ekki búinn að blogga neitt lengi og ég tel mig knúinn til þess að afsaka það.
1. Ég hef voða lítið verið heima og þegar ég hef verið heima þá langar/nenni ég ekki að blogga. Til hvers að blogga ef mann langar ekki til þess?
2. Ég er búinn að vera í afneitun.
a) Allt sem mér hefur dottið í hug að blogga um held ég að sé of leiðilegt eða að ég myndi skrifa svo mikið að enginn myndi nenna að lesa það.
b) Mér fannst seinasta blogg færslan mín svo rosalega sniðug og mér fannst ég ekki fá nógu jákvæð viðbrögð við henni. Ég vonaðist til að fá viðbrögð á við: "djöfull ertu geðveikt fyndinn. Ég vildi að ég væri jafn fyndinn og þú" eða "Þú ert einn mesti snillingur sem ég hef nokkvurn tíma kynnst" fyrst að fólk gaf ekki jákvæð viðbrögð við þessari færslu sem mér fannst svo endalaust mikil snilld og fyndin þá efaðist ég um að fólk myndi fíla eitthvað annað sem mér myndi detta í hug að skrifa um.
3. Ég hef tekið eftir því að fólk kommentar yfirleitt bara á síðustu færsluna. Ég var að bíða eftir að einhver kæmi með upplífgandi komment á áður umrædda færslu.
Kanski finnst ykkur lesendum mínum þetta ekki fullnægjandi afsakanir en þetta eru allaveganna meðal ástæðna bloggleysisins.