23 febrúar 2004
Ég fékk þá flugu í höfuðið að skoða gítara á netinu í gær. Það endaði með því að ég var að ljúka við að panta mér eittstykki.
Gleðilegan bolludag.

svona lítur gripurinn út sem ég pantaði.
22 febrúar 2004
Það lítur út fyrir að fólk kunni ekki að nota athugasemdarkerfið á þessari síðu þannig að ég ætla að fara yfir hvernig það virkar
1. Smellið á athugasemdar hlekkinn. Athugasemdarhlekkinn má finna neðst í hverri færslu og er appelsínugulur að lit. Það er ávalt einhver tala innan í sviga í athugasemdarhlekknum. Oftast mjög lágtala líklega vegna þess að fólk kann ekki að nota athugasemdarkerfið.
2. Þegar þið hafið smellt á hlekkinn þá opnast nýr gluggi. Í þeim glugga getiði fyllt út nafn, netfang og veffang ef þið viljiið.
3. Eftir að þið hafið fyllt út þær upplýsingar um ykkur sem þið viljið að sjáist, getiði þið skrifað einhverja uppbyggilega athugasemd sem gerir mig ánægðan og hvetur mig til að blogga meira.
4. Þegar þið hafið gert allt þetta smellið þið á "OK" hnappinn.
5. Endurtakið liði 1-4 á sem flestar færslur.
20 febrúar 2004
Það er þekkt vandamál að nemendum á leiðist stærðfræði kennslan og eigi erfitt með að sýna henni áhuga. Ég er búinn að finna snilldar ráð til að gera stærðfræðina áhugaverðari.
Tökum sem dæmi hvað er áhugavert við fallið y=cosx? Hvað er svona spennandi við formúluna y=cos(bx+c) þar sem a er útslag b er tíðni og c fasamunur.
Það er miklu áhugaverðara að segja að fallið y=cosx sé mörg brjóst sem snúa umm og niður til skiptis. Það má ímynda sér að nokkrar stelpur stilli sér upp tvær gagnstæðar raðir og svo setja þær allar annaðbrjóstið á milli brjóstanna á annari stelpu. Þá er hægt að setja fram brjóstaformúluna y=cos(bx+c) Þar sem a er stærð brjóstanna, b er fjöldi brjósta og c staðsetning þeirra. Svo ef maður vill að öll brjóstin snúi eins þá setur maður þau inn í tölugildi.
Ég man líka að Valdimar Valdimarsson var að kenna okkur um markgildi, punktgildi og allsskonar þá færði hann stærðfræðina nær raunveruleikanum með því að teikna kalla sem ferðuðust eftir gröfunum. Kallarnir voru ímist að keyra, hjóla, labba eða á skíðum eftir föllunum. Einn daginn þá slysaðist einn kallinn til að renna sér niður lóðfellu á skíðum. Eftir næsta falli ferðaðist sami maður í hjólastól.
Stærðfræði getur sko verið skemmtileg ef maður skoðar hana í réttu ljósi.

Leiðinleg óáhugaverð stærðfræði??? nei BRJÓST.
17 febrúar 2004
HÍ fær 309 þúsund krónur í kennslugjöld á hvern nemanda frá ríkinu.
HR fær 335 þúsund krónur á hvern nemanda.
HR eru að kvarta yfir því að þeim sé mismunað um rannsóknar fé og það sé jafnréttisbrot á þeim. Fatta þeir ekki að þetta er EINKASKÓLI.
Ég held að það séu frekar nemendur HÍ sem ættu að heimta jafnrétti. Sérstaklega í ljósi þess að það er alltaf verið að tala um að í HÍ sé verið að halda uppi dýrum og fámennum deildum.
Djöfull er ég orðin pólítískur, enda er ég flokkaður undir pólítískt blogg hjá önnu.
Ég var að skoða fjárlagafrumvarp 2004. Það sló mig svolítið hvað það fara gífurlegar fjárhæðir í stjórn landsins.
Nú er mikið verið að skera niður á heilbrigðiskerfinu og menntakerfið fær ekki jafnmikin pening og það myndi vilja fá.
Af hverju er ekki skorið niður í srjórnkerfi landsins? Það væri t.d. hægt að segja upp stöðum 10 þingmanna en þingfararkaup er tæpar 440 þúsund krónur á mánuði þannig að sú fækkun myndi spara ríkið 4,4 milljónir á mánuði eða 52,8 milljónir á ári.
Fyrir þá upphæð væri örugglega hægt að byggja fína tónlistarhöll á 4-5 árum (að þeirri gefnu forsendu að fín tónlistarhöll kosti 200-300 milljónir en ég hef bara ekki hundsvit á fjárhagslegum verðmætum tónlistarhúsa)
Er ekki alveg nóg að hafa 53 þingmenn???
ég fann heimildir um að risnukostaður ríkisstjórnarinnar 2002 hafi farið yfir 300 milljónir og ferðakostnaður og bílastyrkir yfir 2 milljarða ef þessi útgjöld yrðu skorin niður um 15% myndu sparast 345 milljónir til gamans má geta að 345 milljónir eru 1.3% af því sem landspítali háskólasjúkrahús fær.
Annað sem sló mig mjög er að VÍ fær meiri pening en MH og hvað þá MR samt eru ekki fleiri nemendur VÍ en í MH eftir því sem ég veit best.
HÍ fær tæplega 7 sinnum hærri útgjöld til kennslu heldur en HR. í HÍ eru rúmlega 9000 nemendur en ekki fann ég nemanda fjölda HR á heimasíðu skólans. Ég sendi fyrirspurn um nemanda fjölda HR til HR svo ég geti reiknað út útgjöld á nemanda sem kæmu mér ekki á óvart að seú ósanngjörn.
Ég mæli með því að fólk skoði fjárlagafrumvarpið og reyni að fletta ofanaf spillingu ráðamanna. Ég fann margt sem mér fannst ansi gruggugt en þar sem ég er bara 20 ára fáviti þá er ég ekki alveg 100% fær um að geta sagt fyrir víst hvort um spilligu og óþarfa bruðl sé að ræða. fjárlagafrumvarpið er auðfundið á netinu.
13 febrúar 2004
- Mér finnst að Háskólanum í Reykjavík sé ekki mismunað þegar þeir fá ekki jafn mikið rannsóknar fé og HÍ. HR er einka skóli og hann getur bara séð um sig sjálfur. HR ber að sýna þakklæti fyrir allt fjármagn sem hann fær frá ríkinu og á ekki að bera það saman við það fjármagn sem ríkis háskólinn fær þar sem hann er einka skóli.
- Mér finnst hræðilega leiðinlegt að gera eðlisfræðivinnubók.
- Mér finnst að það ættu að vera öflugari almennings samgöngur og færri einka bílar á vegum borgarinnar. Helst ættu bara að vera Strætóar og atvinnu bílar (fluttningabílar, vörubílar, sendibílar, sjúkrabílar, löggubílar, jafnvel pitsu og póst bílar) engir einkabílar. Þá væri hægt að halda uppi almennilegu og góðu strætókerfi og allir myndu spara stórar fjárhæðir auk þess sem það væri umhverfisvænna.
- Að helstu nauðsynja stofnarnir ættu að vera ríkisreknar. Þá á ég tildæmis við banka, síma og póst. Rökstuðningur
Þetta eru allt svið sem er algjör óþarfi að hafa samkeppni á. Ef það væri bara einn banki og engin samkeppni þá væri enginn auglýsingakostnaður og ef maður væri hræddur um að lánavextir yrðu allt of háir þá myndi allur gróði af banka starfseminni fara til ríkisins (en það erum við) Ef þið haldið að þjónusta bankanna myndi versna þá er þjónusta bankanna ekkert frábær. Það er lélegur opnunar tími í öllum bönkum (að vísu með undantekningum í smáralins og fjarðarkaup) og oftast þarf maður að bíða í röðu í ágætis stund þótt að það sé mikil samkeppni milli banka. Maður mindi í versta lagi fá ekkert kaffi í bönkum ef þeir væru einka reknir. Það er líka algjör óþarfi að hafa samkeppni á símamarkaðnum. Það var frábært símkerfi á besta verði í evrópu meðan póstur og sími var í eigu ríkisins (þá var heldur enginn óþarfa auglýsinga kostnaður).
- Mér finnst allt of mikill peningur fara í laun og risnukostað og þess háttar vegna alþingi íslands. Ég held að það megi alveg skera helling niður á kostnað vegna stjórnsýslu ríkisins ég er þó ekki alveg 100% viss.
- Mér finnst að það eigi ekki að stytta framhaldsskólanám. Því meira sem maður lærir því betra. Þó að við útskrifumst eldri en aðrar þjóðir þá útskrifumst við líka klárari (fyrst við höfum meira nám að baki). Í mörgum löndum (t.d. Noregi) Fara allir karlmenn í eins árs herþjónustu eftir 3 ára menntaskóla og geta byrjað í háskóla 20 ára eins og á Íslandi. Mér finnst 4 ár í framhaldsskóla miklubetri kostur en 3 ár í framhaldsskóla og 1 í herþjónustu.
-Ég hef líka nett á tilfinningunni að þessii færsla sé orðin allt of löng og enginn nenni að lesa hana.
09 febrúar 2004
Ég var að fá snilldar hugmynd að sjónvarpsefni, reyndar tvær hugmyndir. Nú eru að koma upp alskonar öðruvísi sjónvarpsþættir en áður hafa sést og getiði lesið dagskrá skjás eins til að fá dæmi. Eðli þáttanna er oft að ganga aðeins lengra en hugmyndir mínar toppa líklega allt saman.
Fyrri hugmyndin:
Einskonar blanda af fear factor og queer eye for the staight guy. Þátturinn gengur út á að fólk fær borgað í peningum fyirir að hafa kynmök sem eru ekki í takt við kynhneigð sína. Þannig verður Gagnkynhneigðum karlmönnum boðnar háar upphæðir fyrir að ríða hvor öðrum (bottominn myndi líklega fá meira) og hommar myndu ríða stelpum og svo framvegis. Einnig væri hægt að borga hefðbundnum manni fyrir að fullnægja eldgamallri, forljótir og ílla lyktandi konu. Þetta er þáttur sem myndi pottþétt slá í gegn.
Seinni hugmyndin:
Gengur einnig töluvert lengra en þeir þættir sem nú eru á dagskrá. Þátturinn er einskonar blanda af temptation island og fear factor. Í þættinum er fólki boðnar himin háar upphæðir fyrir að haldaframhjá í beinni útsendingu og þar með segja skilið við konuna/manninn sinn jafnvel börnin sín og allt lífið sitt. Svo er líka sýnt í þættinum hvernig líf fólks breyttist skilnaðar réttarhöldunum o.s.fr eftir að hafa haldið framhjá í beinni. Þessi þáttur yrði líka örugglega mjög vinsæll. Mildari útfærsla á þessari hugmynd gæti verið að bjóða fé fyrir að segja skilið við maka sinn án þess að hafa fram hjá hald í beinni.
Ástæðan fyrir að mér ég fékk þessar hugmyndir er að ég var spurður í dag hvað ég myndi vilja fá borgað fyrir að leika í íslenskri homma klámmynd sem yrði gerð fyrir Íslandsmarkað. Þess má geta að spyrjandin hefur stundað nám við kvikmynda gerð (en er þó ekki gústi).
Hvort finnst ykkur afbrigðilegra sjónvarpsefni?
fullt af risastórum, sveiitum köllum að berja, merja, ýta, og troðast á hvor öðrum til að ná að koma uppblásinni tuðru yfir einhver endamörk.
Eða kona að syngja fallegt lag og það sést í brjóstið hennar, uppsprettu móðurmjólkur og tákn tengsla móður og barns.


Hvort er afbrigðilegra? Brjóst eða amersískur fótbolti?
08 febrúar 2004
Þessari spurningu er oft kastað fram líkt og spurningunni um hænuna og eggið. Mjólkurglasspurningin er bara alveg fáranlega asnaleg. Sumir myndu halda að það sé verið að spyrja um hvort mjólkin í glasinu sé 0 + 1/2 glas eða 1 - 1/2 glas en hvaða fáviti sem er veit að 0 + 1/2 = 1 - 1/2 þannig að ef það væri spurningin þá væri hún virkilega fáranleg.
En hvað þýðir tómt mjólkur glas? jú það er mjókurglas með engri mjólk glasið hefur magnið 0 af mjólk. Hálf tómt mjólkurglas hlýtur þá að innihalda magnið 0 x 1/2 sem er = 0.
Hinsvegar er hægt að spyrja sig. Er til eitthvað sem má kalla tómt mjólkurglas. Ef ég sýni þér tómt glas, geturu þá sagt hvort það sé tómt mjólkurglas, vatnsglas, kókglas eða appelsínusafaglas?
Þannig að svarið við spurningunni: "Er mjólkurglasið hálffullt eða hálftómt?" er að glasið sé að sjálfsögðu hálffullt því að ef það væri hálftómt þá væri það ekki mjólkurglas því hálftóm mjólkurglös eru ekki til.
Hressir, ferskir, flottir og fallegir krakkar drekka mjólk.
05 febrúar 2004
Sumir (þarmeð þalinn ég) segja pulsa en aðrir segja pylsa. En afhverju segir engin puls í staðin fyrir pils? eða pulsner í staðin fyrir pilsner?
Svo er pæling (sem er ekki mín) í sambandi við nafnið á seinustu nótunni í C-dúr. Sumir, t.d. þeir sem eru í FÍH, kalla nótuna B meðan aðrir kalla nótuna H. Afhverju kalla þá ekki þeir fyrnefndu skólann sinn FÍB? Þeir gætu líka kallað Sigga Hall, Sigga Ball.
Tveir nemendur í FÍH voru að tala saman: "Hey viltu koma upp í FÍB og æfa B lýdískan skala og n okkur lög eftir Berbie Bancock". Hinn svaraði. "Já kanski þegar ég er búinn að horfa á Sigga Ball og drekka pulsner." sá fyrsti segir svo "Hey varstu búin að heyra nýju plötuna hans Dave Bolland?
03 febrúar 2004
Í nýliðinni viku, í pásu í tíma í greiningu rása kom upp í umræðuna sú hugmynd að stylla upp andaborði í prófi og fá hjálp einhvers anda til að leysa prófið. Það gæti komið sér vel á krossaprófi. Hins vegar gæti verið bölvað maus að gera slíkt á eðlisfræðiprófi því þá þyrfi maður að setja alskonar eðlisfræðitákn á andaborðið.
Og fyrst ég er byrjaður að tala um próf. Ég man þegar ég var í MH, þ.e.a.s. fyrir langa langa löngu einhverntíman í eld gamladaga, þá var oftast mjög tæpur tíminn sem maður hafði til að klára prófin, sérstaklega í íslensku (því að íslensku deildin í MH er svo útúr fokked up og veruleikaskerrt, eins og hefur áður komið fram á þessari síðu). Hvað ef maður þyrfti allt í einu í miðju prófi að virkilega mikið að gera nr. 2? Pælið í því að þurfa að velja á milli þess að þurfa annaðhvort að þurfa mjög líklega að fara aftur í hundleiðinlegan áfanga hjá einhverjum útúr rugluðum kennara eða að gera í buxurnar og jafnvel að fara heim í strætó með hægðir sínar í buxunum. Hvað ef maður þyrfti að æla í prófi í MH inni í sal þar sme eru kanski 60 aðrir að taka próf. Þá myndu margir muna eftir manni sem gaurnum sem ældi í prófi.
Þessi gaur ákvað að standa upp í prófinu og æla á kennaraborðið