25 mars 2004

Meira rokk


Hljómsveitin mín hefur tekið mikið pláss í hugsunum mínum undan farið. Ég er búinn að standa í ýmsu varðandi hana. Í kvöld er ég að fara að spila á tónleikum í MH. Nánari upplýsingar um hljómsveitina má finna hér.


Ég þori ekki öðru en að setja hérna rokkmynd af Atla því að hann er happa.


17 mars 2004

Hin ófyrirsjáanlega framtíð


Einhver röskvun varð í tímarúminu og skekkja kom fram í framtíðar spá minni. Dagsetningin 17. mars virtist vera röng en tónleikarnir verða þó einhvern tíman í náinni framtíð. Þess má geta einhver (skattstjóri grunaður) reyndi að flýja örlögin og lét loka ellefunni tímabundið.


16 mars 2004

Framtíðar spá.


Nú ætla ég að spá fyrir ykkur öllum. Nú hefst spáin:

Það kemur hérna upp dagsetningin 17. mars 2004. Ég sé fyrir mér skemmtistað í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið ellefuna. Þú/þið munuð vera þar á tónleikum þar sen hljómsveitirnar Isidor og Norton munu spila frá kl 21:30. Þú/þið ert/eruð kominn þangað og þið þurtuð ekki að borga neinn aðgangseyri. Þú skemmtir þér konunglega í hópi skemmtilegs fólks.



10 mars 2004

Kynlíf og bíómyndir


Kannast einhver við að vera að horfa á ágætis bíómynd sem fjallar að öllu eða einhverju leiti um samskipti karls og konu. Svo kemur sá staður í myndinni að karlinn (í flestum tilvikum) nær að tæla konuna upp í rúm til að gera kynlíf með sér, en rétt áður en mest djúsí parturinn í kynlífinu hefst, þá er klippt og ekkert eða lítið sem ekkert er sýnt af kynlífinu. Það er sem sagt, í meirihluta almennra kvikmynda, reynt að sneiða hjá því að sýna fólk gera fallegasta og eðlilegasta hlut í heimi.

Svo er hægt að nálgast myndir sem inni halda einungis kynlíf (ef kalla má það kynlíf). Þær eru illa gerðar fyrir lítið fé og hundleiðinlegar. Þær myndir eru líka gjarnan ansi afbrigðilegar og draga ekki fram þá mynd af kynlífi, að það sé fallegasti og eðlilegasti hlutur í heimi.

Mér finnst afskaplega leiðinlegt að vera búinn horfa á mynd með einstaklega fallegum leikurum í dágóða stund og svo kemur að því í myndinni að fólkið ætlar úr fötunum og maður heldur að maður geti dáðst af sköpunaverki guðs og séð náttúrulega og fallega nakta líkama fallegs fólks veita hvorum öðrum unað en þá er bara klippt og manni býðst einungis að sjá annað hvort feita, sveitta og miður fallega nakta karlmanns líkama misþyrma ónáttúrulegum silíkón upppumpuðum nöktum kvenmannslíkömum eða ónáttúrulega stera upppumpaða nakta karlmanns líkama misþyrma ónáttúrulegum silíkón upppumpuðum nöktum kvenmanslíkömum.

Ég ákvað að sleppa því að reyna að finna viðeigandi myndskreytingu við þessa færslu.


08 mars 2004

Ritteppa


Það er ekkert sem mér hefur langað til að segja frá á þessari síðu. Ég hef ekki fengið neina hugmynd að umfjöllunar efni sem gæti kætt lesendur eða vakið áhuga þeirra.

Annars þá var ég einstaklega hneikslaður af samnemendum mínum á föstudaginn.
Þegar við stigum út úr rútu á Lækjartorg var okkur flestum svolítið mál að pissa (af einhverri algjörlega óútskýranlegri ástæðu). Barbarískir samnemendur sem margir hverjir höfðu stundað nám við versslunnar skóla Íslands ákváðu að það væri mjög ákjósanlegur kostur að sprauta þvagi sínu á MR. Það finnst mér ekki sniðugt. Ég hefði þó ef til vill haft húmor fyrir því þegar ég var busalingur. Þegar villimennirnir úr versló höfðu lokið þvaglátum sínum þá stofnaði ég til annars slags láta. Það var að syngja Gaudiamus á tröppunum, svona til að reyna gera gott úr málunum og reyna að sætta látna forfeður okkar úr MR, svo að þeir kasti ekki álögum og/eða bölvun á deildina okkar.

Vel á minnst "og/eða". Ég þoli ekki að þurfa lesa og skrifa "og/eða". Afhverju er bara ekki til eitt íslenskt orð sem merkir "og/eða"? Hvað voru mennirnir að eiginlega að pæla þegar þeir ákváðu að búa til íslenska tungu. Datt þeim ekki í hug að maður bæði þurft að segja og og eða í einu? Þeir gætu tildæmis notað orðið "oða". Í setningu mætti nota hana svona: "Er kveikja skal eld er gott að hafa kveikjara oða eldspítur" eða "Þegar það rignir er þjóðráð að klæðast stígvélum oða pollabuxum"


Verzlingarnir nýbúnir að pizza og pózuðu svo fyrir ljózmyndarann