24 maí 2004
Í vinnunni í dag rústuðum við prentara með því að henda 10x20 hellu í hann. Það var æðisleg tilfinning (já eins og í Office Space)
Mér finnst svolítið merkilegt, fólk sem vill alltaf hafa tónlist. Ég er ekki að tala um fólk sem hefur mikinn áhuga á tónlist og hlustar þessvegna mikið á tónlist heldur fólk sem hlustar t.d. á tónlist meðan það er að lesa. Hvernig er hægt að njóta bæði lestursins og tónlistarinnar í einu? Mér finnst þetta álíka ómögulegt og fáranlegt og að horfta á tvær bíómyndir í einu. Auðvitað er hægt að hafa tvær bíómyndir í sjónsviðinu í einu en maður nær aldrei að horfa á nema aðrfa myndina í einu. Fólk sem hlustar á tónlist meðan það les er líka rosa lega hrætt við þögnina, finnst rosalega óþægilegt ef það er engin tónlist í bakgrunnin og er jafnan haldið þagnarfóbíu. Slík bakgrunnstónlist er víst nefnd síbylja (hverning sem það er nú skrifað) og mér finnst þetta vera svo fáranlegt dæmi.
Ég hef þó tekið eftir því að ef maður verður að hafa einhverja síbilju þá er FM 957 lang þæglegasta síbyljan. Bara fastur taktur ekkert sem breytist eða óvenjulegt, óreglubundið og ekkert sem eyrun eru ekki vön að heyra. Að heyra í FM 957 eða annari góðri síbylju er svipað og að heyra í læk.
Mér finnst líka mjög fyndið þegar fólk segist vera bara alæta á tónlist hlusta á bara allt svo spilar maður eitthvað sem manni finnst skemmtilegt og fólkið meikar það enganveginn.
Mér finnst líka fyndið þegar fólk segist hlusta á FM 957, ég trúi því ekki að nokkur maður hlusti á FM 957, fólk heyrir bara í FM 957 en hlustar ekki.
Svo er það líka með blessaða útvarpið að það er gjarnan mjög óþægilegt að hlusta á það því að hljóð styrknum er þjappað svo mikið saman og settur alveg upp við leyfileg mörk (með compressorum) svo að það komi sem mestur háfaði frá rásinni þegar maður surfar gegnum útvarpstöðvanar. Þetta veldur því að það er rosalega þreytandi að hlusta á útvarpið og hljómurinn verður asnalegur.
Þess má líka geta að þegar hljóðrás er sett inn á auglýsingar er hljóðið compressað (Hljóðstyrknum er þjappað saman) svo að auglýsinginn hljómi hærri í sjónvarpinu. Þetta er rosalega pirrandi því að maður þarf oft að lækka þegar það koma auglýsingar í sjónvarpinu.
eitt af mínu lífsmóttóum er að hlusta sem allra minnst á útvarp (ég hlust þó stundum á rás1 og rás2 því þar eru oft áhugavert efni) og horfa sem allra minnst á sjónvarp.

Þessi krakki er hræddur við þögnina og hlustar þessvegna á FM 957 í heyrnatólnum meðan hann les.

21 maí 2004
Einu sinni voru tvær persónur sem hétu Charlie Parker og Miles Davis og þeir áttu í leynilegu ástarsambandi.
Og hvað með það? Hvorki mér eða neinum öðrum kemur neitt við hvort aðrir eigi í leynilegum ástarsamböndum. Þannig að ég algjörlega neyta að blogga staf meira um þetta samband þeirra sem Andri vildi að ég gerði skil á hér.
Allir þeir sem hafa litið inn á þessa síðu hafa eflaust tekið eftir því að ég hef ekki skrifað neitt inn á hana.
Það er bara þannig að ég er þannig listamaður(bloggari) að ég get bara ekki skapað eftir hvenær sem ég vil. Ég verð að finna uppá einhverju sniðugu til að blogga um.
Ég datt í læk í gær þegar ég réri yfir hann á gúmíbát.
Það styttist óðum í Isidorplötuna.
Verið spennt,
verið mjög spennt.
annars þá veit ég ekki betur en að við munum spila á lækjartorgi á morgum (laugardag 22 maí) milli kl 16 og 18.
11 maí 2004
Jæja, Ég er bara í prófum og svona. (þetta er líklega það sem ég myndi seigja við þann sem ég myndi hitta á förnum vegi).
ég ætla að byðjast afsökunnar á leti við að uppfæra linka listann minn. Það er fullt að fólki sem ég hef ætlað um stund að bæta á listann minn en á ennþá eftir að gera það.
Ég ætla líka að bíða fram yfir próf að verða að ósk Andra um að blogga um efnið sem hann valdi sér eftir að hafa leyst þrautina.
Annars er hausinn minn bara fullur af tölum, jöfnum og formúlum. Ef ég myndi hitta þig (lesandi góður) þá myndi ég örugglega reyna að heilda þig, finna taylor röð fyrir þig, spennudeila þér eða troða þér í fylki.
annars þá læt ég nördalegasta bloggið á verkfræðinördabloggklúbbsíðuna Þar getiði m.a. séð sniðugar minnis reglur sem ég bjó til til þess að hjálpa fólki að muna óhefðbundnu hornaföllin.
06 maí 2004
Margir velja bloggara mánaðarins og ég hef gert það tvisvar. Núna ætla ég að velja fyrirtæki mánaðarins það er Kukur enterprises. Fyrirtæki sem gæti kannski gert það gott á Íslandi.
Ég ætla líka að velja stjórnmálastefnu/-herbragð mánaðarins. Það er svokallaður Þorgerðarkatrínarismi. Hann lýsir sér þannig að taka við embætti, sem er í algjöru fokki, marka sér stefnu og taka ákvarðanir sem allir eru á móti og mótmæla. Svo þegar fólkið mótmælir kemur sko aðal trixið. Það er sko að segja að báðir kostir hafi kosti og galla sem og að hún ætli að skoða málið frá öllum hliðum og vega kostina og gallana.
Hver veðjar að Þorgerður Katrín eigi eftir að komast að þeirri niðurstöðu að áform hennar (eða áform fyrri embættismanna ráðuneytisins) séu ekki nógu sniðug eftir að hafa skoðað bæði kosti og galla áformanna?
Dæmi um slík áform sem hún hefur sagst ætla að vega bæði kosti og galla á eru t.d. samræmdustúdentsprófin og skólagjöld við HÍ.