30 júní 2004
Dag einn vaknaði Orri, hann var orðinn einn í heiminum. Mamma hans og pabbi voru farin til útlanda, yndislega kærastan hans var líka farin til útlanda. Systkyni hans dvöldu meira og minna hjá kærustanum og kærustunni sinni. Að vísu voru krakkar í vinnunni hans Orra en þau voru í allt öðrum heimi í huganum þannig að Orri var einn í heiminum. Orri hugsaði "frábært núna get ég gert allt sem mig langar. Ég get ráðið hvað er í matinn ég get fengið mér bjór, ég get spilað hátt á gítarinn minn og horft á myndir án þess að vera truflaður". En eftir smá stund var Orri orðin hundleiður á því að vera einn og fór að sakna foreldra sinnna og sérstaklega kærustunnar sinnar. Svo vaknaði hann allt í einu og komst að því að hann var EKKI að dreyma heldur myndi hann halda áfram að vera einn.
27 júní 2004
Hæ lesandi,
Eins og þú hefur ef til vill tekið eftir þá hef ég alls ekkert verið neitt duglegur að skrifa blogg. Ég ætla ekkert að afsaka eða reyna að útskýra afhverju heldur ætla ég að skilja þig eftir sem spurningarmerki sem getur í mesta lagi getið sig til um hver hin raunverulega ástæða þess sé.
Þar sem ég hef ekkert skrifað neitt lengi halduru kanski að núna komi eitthvað svaka flott og fancy blogg hjá mér með hreyfimynd og alskonar glamúr, en nei nei, þið verðið heppin ef ég set mynd (hef ekki ennþá gert upp við mig hvort ég geri það). Ég hef ekki einusinni planað neitt hvað ég ætla að skrifa um.
Heyriði mig mér datt í hug heimspekileg pæling í dag (kannski ekkert neitt frábær pæling miðað við margar af mínum pælingum).
Ólí segir við Sigga: "Á morgun kemur Gunna í heimsókn" Daginn eftir, þegar Gunna er komin í Heimsókn, segir Siggi "núna er á morgun".
(þetta hljómar líka skemmtilega ef maður segir dagurinn eftir þennan dag í stað þess að segja á morgun. Þá verður setning Óla: "Daginn eftir daginn í dag, kemur Gunna í Heimsókn" og setning Sigga: "núna er dagurinn eftir daginn í dag".
Er það rétt hjá Sigga að það sé á morgun?
Ef maður getur ekki sagt að á morgun sé núna, er þá einhverntíman á morgun? Ef að það má kalla einhvern tíma punkt á morgun, og maður segir að einhver atburður gerist á þessum tímapunkti væri þá ekki eðlilegt að maður geti sagt að á morgun sé núna þegar maður er kominn á tímapunkt?
Einnig er framtíðin áhuga verð. Einnusinni sagði einhver að í framtíðinni ættu almenningur eftir að ferðast um á vélknúnum farartækjum á hjólum. Núna ferðast almenningur um á vélknúnum hjólum. Getum við þá ekki sagt að framtíðin sé núna? Varla getum við það því að núna er nútíðin. Hafði þá þessi spámaður rangt fyrir sér?
Getur maður fullyrt að eitthvað eigi eftir að gerast í framtíðinni ef að framtíðin kemur aldrei. (Framtíðin kemur aldrei því að ef framtíðin myndi koma ætti maður að geta sagt þegar þar að kemur að framtíðin sé núna).
Í stuttu máli:
Hvorki morgundagurinn né framtíðin munu nokvurn tíma eiga sér stað.
12 júní 2004
VARÚÐ
Hafið þir ekki séð kvikmyndina Konung ljónanna gæti hér verið efni sem skemmir fyrir ykkur söguþráð myndarinnar.
Ég las fyrir stuttu heimspekigrein um kvikmyndina Konungur ljónanna, efni hennar var val Simba milli þess að halda áfram sældar lífi með Tímoni og Pumba eða axla ábyrgð og redda málunum í Ljósuklettum. Ágætis grein sem þið getið fundið á www.hugi.is/heimspeki. Þessi grein kom mér til að hugsa nánar út í boðskap myndarinnar og ég komst að þeirri niðurstöðu að myndin reynir í rauninni að réttlæta mismun milli ríkra og fátækra.
Myndin segir í rauninni að ef allir fá nóg að borða, bæði ríkir og fátækir (bæði ljón og hýjenur) þá renna allar auðlyndir jarðarinnar upp til þurða og á endanum svelta allir. Ef fátækir (hýjenur) borða líka fylli sína þá raska þær hringrás lífsins (Cirle of life) og allt fer til fjandans. Þess vegna ber að varast að jafnréttissinnar eins og Skari komist til valda (Skari notaði að vísu ljóta klæki til að komast til valda og það var lítið sem hin ljónin hefðu getað gert til að koma í veg fyrir það). Fátækir (hýjenur) þurfa s.s. að búa í fátækrahverfum (samanber svæðinu sem sólin skein ekki á, og ég man ekki hvað hét) við annars flokks aðstæður og svelta. "En hýjenunar voru vondar og gátu þess vegna ekki búið með hinum dýrunum" gæti einhver sagt en þær voru bara vondar vegna þess að þær höfðu þurft að búa á þessum stað við kúgun frá hinum og ójafnrétti líkt og fátækir í fátækrahverfum leiðast oft út í afbrot vegna kúgunar og ójafnréttis sem þeri lifa við. Þeir sem eru vondir við aðra og stíða gera það vegna þess að þeim líður illa.

Konungur ljónanna reynist á yfirborðinu vera saklaus barnamynd en udnir niðri boðar í staðin boðskap að það eru bara örlögin ein sem ráða því hvort maður svelti eða borði fylli sína. Risafyrirtækinu Disney í hag.
01 júní 2004
Í blogheimum er þó nokkuð um að bloggarar úthluti verlaunum fyrir framúrskarani árangur.
Ég er ekkki undantekning þar á og heff t.a.m tvisvar valið bloggara mánaðarins og valdi fyrir stuttu fyrirtæki og stjórnmálastefnu mánaðarins.
Núna ætla ég hinsvegar að úthluta skammverlaun. Skammarverlaunin gef ég fyrirtæki sem er afskaplega asnalegt og mér finnst gefa lélega þjónustu á hærri verði en þörf er á.
Verðlauin faaaaáááá
*trommu þyrill*
Síminn
Hvað er eiginlega í gangi hjá þessu fyrirtæki. Ég veit ekki um neitt meira leim fyrirtæki. Það mætti halda að því væri stjórnað af Einari Bárðarsyni eða einhverjum álíkagaur sem álítur sig vera aðalgaurinn sem er bara málið.
Ég hef skipt við þetta fyrir tæki frá því rétt áður en ég byrjaði í MH og þvílíkir aular og fávitar. Ég hef nokrum sinnum farið og þurft að breyta einhverju í sambandi við símanúmerið mitt og ég held að það hafi í 80% tilvika ekki heppnast eins og það átti að heppnast.
Á tímabili var ég með tvö númer í reikning og ætlaði að breyta þeim yfir í frelsi í útlöndum, það tókst ekki með annað númerið, ég bað sérstaklega um að hvorugt símanúmerið væri undir mínu nafni í símaskránni, númerið sem ég notaði ekki kom í símaskránna undir mínu nafni, þegar ég ætlaði að taka það úr símaskránni kom hitt númerið mitt í símaskránna þótt að ég hafi tekið skýrt og greinilega fram að ég vildi hafa hvorugt símanúmerið í skránni.
Starfsfólkið sem ég hef neyðst til að tala við er svo asnalegt og heimskt og það kæmi mér á óvart ef þau vita yfirhöfuð við hvað þau vinna (t.d. einu sinni lenti ég í stúlku sem ég held að hafi ekki náð neinu af því sem ég var að segja því að hún var svo upptekin við að borða malteses og drekka dietkók, svo fór hún að segja starfsfélaga sínum einhverjar kjánalegar djammsögur.
Ekki nóg með þetta heldur þá er okurverð fyrir allt, Það kostar t.a.m. 1200kr. mynnir mig að skipta úr frelsi í reikning og öfugt, samt tekur það rosalega langan tíma og þeir klúðra því samt.
Svo er það blessuð markaðssetningin, Tilhvers voru þeir t.d. að eyða fullt af pening í að gera nýtt lógó og skilgreina sig öðruvísi á markaðnum og eyða fullt af peningum í auglýsingar sem eru hver annari verri og asnalegri. Það er ekki eins og ég hringi eitthvað meira ef ég horfi á rosalega margar auglýsingar. Svo er þessi síða þeirra, sem ég hef að vísu ekki skoðað neitt rosalega mikið því að mér líður eins og fávita þegar ég fer inn á þessa síðu.
Og afhverju þarf ég að skrá mig í símavini ef ég vil ekki vera rændur. Geta þeir ekki bara frekað lækkað mínútuveðið í staðin fyrir að lækka að gera þetta svona til að stela kúnnum af keppinautnum.
Skiptu yfir í ogVodafone segiði kannski en ég stórlega efast um að það sé eitthvað skárra á þeim bænum.
Þess má geta að samkvæmt ánægjuvoginni þá eru það þessi tvö símafyrirtæki sem reka lestina.
Ég held að gallinn hjá þessum tveim símafyrirtækjum sé að þau einbeita sér svo mikið af samkeppninni við hvort annað að þau gleyma beygja sig eftir þörfum viðskiptavinana og láta viðskiptavinin beygja sig eftir þörfum sínum í samkeppni við hitt fyrirtækið, (eins og t.d. með síma vini eða hvað sem þetta allt heitir
Samkeppnin á þessum símamarkaði er gott dæmi um hvernig samkeppni milli fyrirtækja bitnar á viðskiptavinum þeirra.
Ef það væri ekki samkeppni á símamarkaðnum mynd það hafa eftirfarandi kosti í för með sér.
* Maður gæti valið sér nýja vini sína útfrá persónugæðum þeirra en ekki útfrá hvaða símafyrirtæki þeir skipta við.
* Maður gæti ræktað vinasambönd við fleiri manneskjur vel heldur en símafyrirtækin leifa manni.
* Maður þyrfti ekki að gera upp á milli vina sinna þegar maður velur hverja er ódýrara að hringja í.
(ástæðan fyrir þessu væri að öll símaverð í öll númer væri hærri)
* Síma fyrirtækiuð þyrfti ekki að eyða nærrum því jafnmiklum fjárhæðum í auglýsinar, endurskilgreiningar og markaðssetningu.
Þið segið kannski að ef það væri bara eitt símafyrirtæki þá myndi það bara okra á manni, hins vegar þá var langlægsta símaverð í evrópu á Íslandi þegar póstur og sími voru í eigu ríkisins, Símaverð er hinsvegar ennþá eitthvað lærra á íslandi en annnarstaðar en það gæti alveg verið lægra ef rétt væri farið að.
Ég hljóma kannski eins og einhver brjálaður kommi en ég er alveg á þeirri skoðun að samkeppni sé í flestum tilvikum af hinu góða en þó með þessari undantekningu.