29 júlí 2004
kæru lesendur,
Hér er gáta:
Hver er ekki búinn að vera duglegur að dæla út skemmtilegum og áhugaverðum bloggfærslum út úr hugarheiminum sínum?
Já vitiði svarið? Það er rétt. Það er hann Ég.
Ég sagði eitt rosalega fyndið heima hjá mér fyrir tveimur dögum. Til að setjaykkurinn í heimilis aðstæður mínar á þeim tíma þá hafði móðir mín veriðað bakaskúffu köku og faðir minn tekur eftir því að það er smjörlyki í skálá einum eldhúsbekknum og spyr "Hvað er þetta smjörlyki að gera þarna?" Móðir mín svarar:"Æ, ég gleymdi að setja það í kökuna" Þá datt mér sniðugt grín í hug og seigi:"Við verðum þá bara að borða það með kökunni"
Ég var alls ekki hættur gríninu það kvöldið heldur bjó ég til brandaragátu um smjörlyki. Hún er svona:
Hvernig býr maður til smjörliki?
Maður þeytir gerfirjóma of lengi
Já ég sko mikill grínari í mínu daglega heimilislífi.
Þess má geta að litla systir mín (16) sem er mjög bókmenntalega sinnuð kom þá með innlegg í smjör og smjörlíkis umræðuna því hún hafði lesið bók þar sem tvö tígrisdýr hefðu hlaupið í svo marga hringi í kringum tré að úr varð tígrisdýrasmjör. Úr tígrísdýrasmjörinu bakaði móðir aðal söguhetjunar pönnukökur. Þá spyr ég ykkur, bókmennta sinniðu lesendur, úr hvaða merka bókmenntaverki var þetta?
Á síðunni www.browne-trading.com er hægt að kaupa japanskt krabbasmjör.
13 júlí 2004
Ég hvet alla til að mæta á útgáfutónleika Isidor (sem ég spila á gítar í)
tékkið líka á theisidors.com innan tíðar.