28 ágúst 2004

Síma tilviljanir


Ég ætla að deila með ykkur nokrum skemmtilegum síma tilviljunum sem eru hugarsmíð Jóns Þórs og hann deildi með mér þegar við vorum að labba á laugarveginum.

Símatilviljun 1(hugarsmíð Jóns Þórs):
Maður er að labba á laugarveginum (eða öðrum vegi), maður þarf að hringja, en hringir óvart í vitlaust númer. En númerið sem þú hringdir vitlaust í er hjá ókunnuga manninum (eða konunni) sem þú ert að fara að mæta og hann svarar.
Skemmtilega tilviljun ekki satt?

Símatilviljun 2a (útfærsla Orra af símatilvjun 2 ):
Maður er einnig að labba á laugarveginum, síminn hjá manni hringir en þá er það ókunnuga manneskjan sem er að labba á mótimanni að hringja í vitlaust númer.
einkennileg tilviljun.

Símatilviljun 2 (hugarsmíð Jóns Þórs)
Maður er að labba á laugarveginum, síminn hringir en maður fattar ekki alveg hver það er, en manni finnst maður eigi að vita hver þetta er og viðurkennir ekki að maður fatti það ekki heldur þykist vita hver viðkomandi er. En svo mætir maður viðkomandi og a) nikkar honum og blikkar, mætir honum og heldur svo áfram að labba og tala í símann. eða b) maður segir "heyrðu má ég hringja í þig eftir smá" og ferð svo að tala við viðkomandi.
skemmtilegar aðstaða ekki satt.

Símatilviljun 3 í Tvíhöfða stíl. (hugarsmíð Orra)
Maður ætlar að hringja í afa sinn, en hringir óvart í vitlaust númer. Heyrði þá hringdi maður bara í bankann.
þvílík tilviljun.


hér má sjá svaka arty mynd af mér og Jóni Þór (aðallega mér þó) á góðum degi


24 ágúst 2004

Fartölvuflóð


"Átt" þú fartölvu? Ef ekki þá geturu varla talist manneskja. +

Hugsaðiru: Afhverju setur hann "átt" inn í gæsa lappir?

Rétt upp hönd sem hefur ekki orðið var við fartölvuauglýsingar undanfarið (fólk í útlöndum undanskilið).

Ég var að pæla í að skrifa langan pistil um þetta efni en ég ætla að draga það saman í stutt mál.

Málið er að mér finnst bjánalegt hvað allir eru að bjóða námsmönnum fartölvur og fartölvulán með mánaðar greiðslum í ljósi þess að mánaðarlegar tekjur námsmanna (sérstaklega framhaldskólanema) eru litnar hornauga.

Ég er á því að minnihluti námsmanna þurfi fartölvu fyrir meira en 100 000 kr.

Tölvan mín er appelsínugul ibook (fyrsta kynslóð ibook) frá árinu 2000. Ég keypti hana á 20 000 fyrir ári og hef stækkað hana fyrir 22 500 (þráðlaust netkort 10k, 256MB Ram 5k og 40 GB harðurdiskur 7500 kr.) og hún dugar mér alveg rosalega vel og ég þarf ekki að borga krónu af neinum lánum.


Hér má sjá annann stoltan eiganda samskonar fartölvu og ég á.


20 ágúst 2004

Blonde redhead til Íslands!!!!!


Margir hafa nefnt þetta sumar tónleikasumarið mikla. Ég hins vegar hef ekkert verið að kippa mér upp við alla þessa tónleika sem hafa verið í sumar. Ég hef hugsað. Pixies..... jú ætli maður skelli sér ekki bara, Metallica..... Kannski ef það myndi kosta 1000kr. Deep Purple, 50 cent, pink, Nei takk, Mars Volta... jú jú, best að fara á þá. Svo sá ég á síðu tvö í mogganum í dag tilkynningu um að fokking blonde redhead séu að koma og ég held að mér hafi liðið svipað og 12 ára smástelpu árið 1998 sem fréttir að Spice Girls séu að fara halda ókeypistónleika í bænum hennar. Ég var að pæla í að fara strax í röðina fyrir utan miðasölustaðinn svo ég myndi alveg örugglega fá miða en það eru alveg 10 dagar þangað til.

Þess má einmitt geta að fyrir tveim dögum pantaði ég mér m.a. annars tvær plötur með Blonde redhead (fyrstu og nýjustu, sem ég á reyndar skrifaða) sem mig vantar í safnið. Alls pantaði ég mér 10 diska.

Isidor spila á menningar nót, sem er á morgun, í Illgresis portinu líklega einhverntíman milli 20 og 22. Svo skuluði drífa ykkur í að kaupa ykkur diskinn.



18 ágúst 2004

Um rokkara, jazzara og fleiri


Þetta er ein af þeim bloggfærslum sem er alveg óskipulögð og ég er ekkert búinn að ákveða mig hvað ég ætla að blogga um. Þetta er svona improvasjon bloggfærsla. Þessi bloggfærsla er eiginlega jazz á meðan skipulagðar bloggfærslur eru meira svona rokk. Sem er svolítil þversögn því að skipulag er ekki eitthvað sem rokkarar tileinka sér og skipulag er ekki hluti af rokk llífstíl og hátterni (í flestumtilvikum). Ég myndi halda að rokkarar lifi oft bara í núinu og fyrir augnarblikið en það endurspeglast þannig séð ekki í rokk tónlistinni þeirra því að rokktónlist er í flestum tilvikum þaulæfð og skipulögð (það var örugglega eitthvað af pönki sem var frekar lítið æft og skiplagt og er þessvegna undantekning, en ég held að pönk hafi líka oft verið mjög skiplulagt , vel æft og fyrirframákveðið). Þessvegna má segja að rokktónlist rokkarans sé fortíðardýrkun því þá hverfur hann aftur í til fortíðar og spilar eitthvað sem varð til í fortíðinni og hann reynir að endurskapa augnarblikið.

Ef maður líkir rokktónlistarmanni og jazztónlistarmanni saman við málara þá er oft eins og rokkarinn sé alltaf að reyna að mála mynd sem er sem líkust fyrirmyndinni en jazzarinn fer vissulega eftir fyrirmynd og á myndinni hans eru sömuhlutir og á fyrirmyndinni en hann málar hlutina svolítið öðruvísi og er ekkert að reyna að hafa myndina sem líkasta fyrirmyndinni heldur vill hann að myndin sé sem flottust.

Klassískurtónlistarflytjandi er hinsvegar alveg fokked up. Hann finnur verk eftir annann, reynir að spila það nákvæmlega eins og leiðbeiningarnar eftir því eru en hinsvegar reynir hann að setja einsmikla tilfinningu og hann getur í það. Hann lifir sköpun annara og reynir að láta sínasköpun verða eins og höfundurinn vill að hún sé.

Ef maður líkir þessu við að byggja hús úr legókubbum þá hanar rokkarinn nokkur legóhús og reynir að hafa það eins flott og hann getur og æfir sig síðan að byggja þau. Svo þegar það kemur að tónleikum þá reynir hann að byggja húsin eins og hann gerði það á æfingunum. Jazzarinn æfir og æfir sig að byggja legó hús oft eftir fyrirmyndum húsa sem frægir jazzarar hafa byggt og á tónleikum þá er hann með ákveðnar hugmyndir um hvernig hús hann ætlar að byggja en svo kemur bara í ljós hvernig það verður. Kalssískurinn hann er hins vegar með teikningu af legóhúsi eftir frægan legóhúsateikningagerðamann. Hann byggir húsið nákvæmlega eftir teikningunni. Ef klassískinum tekst vel til verður húsið mjög lifandi og fullt af tilfinningum.

Best að einda þetta á vísu

Klassík, fönk, jazz, rap og rokk
reyna menn að smíða
Á ensku seigir fólkið "fokk"
á færeysku "að ríða"

Hér lag sem ég samdi ásamt félögum mínum í Isidor. Það er viðeigandi að því leiti að það er bæði rokkað og jazzað. Ef vel er að gáð má heyra mig impróvísera.
Ef þið eru ekki búinn að kaupa diskinn okkar skuluði endilega drífa í því. Sendið mér tölvupóst á orri[at]theisidors.com (skiptið @ út fyrir [at]) og ég skal segja ykkur hvernig þið getið nálgast diskinn. Þið getið líka séð okkur spila á menningarnótt í Illgresisportinu. Þar verður diskurinn einmitt til sölu á 1000kr.

Lagið færðu ef þú ýtir hér


Hver haldiði að hafi byggt þetta legóhús? A) Rokkarinn, B)Jazzarinn, C) Klassískurinn.



04 ágúst 2004

Ný ljóð


Kæru lesendur, núna hef ég ákveðið að semja nokkur ljóð til að byrta hér og akkurat meðan ég er að skrifa þennan texta sem þú ert að lesa akkurat núna er ég ekki búinn að semja þau heldur ætla ég að byrja á því núna.

Sumarljóð.

á sumrin eru göturnar malbikaðar
það orsakar töf þegar maður fer milli staða
líkt og snjórinn, hálkan og aðrir ófærðarvaldar gera á veturna.
þökk sé nagladekkjunum

á sumrin eiga unglinar pening
og bláskyrtuklæddir athafnamenn sjá sér gróðavon,
beyta öllum sínum brögðum til að næla í arð unglingavinnunar.
Þökk sé arfanum bólgna peninga veskin þeirra út.

á sumrin eiga hljómsveitir líka pening
og gefa út plötur
en bláskyrtuklæddu athafnamennirnir
voru búnir að hrifsa peningin af unglingunum
og létu þá m.a. hafa debet og kredit kort í staðin
það orsakar að afar fáir unglingar gátu keypt plöturnar.
þökk sé athafna mönnunum.

á sumrin skín sólin
í augun á öllum
það orsakar að fólk verður blint
og tekur ekki eftir því hvað er að gerast í kringum sig
og heldur þess vegna að sumarið sé uppáhalds árstíðin þeirra
þökk sé sólinni.


ekki besta ljóðið sem ég hef samin en ljóð er þetta engu að síður.

Verslunarmannahelgi
sumarljóð2

Hvar á að tjalda?
segir hún Alda
niður við eldborg
segir Einar "Sorg(legi" Bárðarson)
Hvað skal þar gera?
Segir hún Hera.
Þar skal gefa stúlkum smjörsýru og nauðga þeim síðan.
Segir hann verslunarmanna Helgi.


portrett vísa

Orri hann er svartsýnn sauður
Semur mikinn leirburð
Ef hann væri orðinn dauður
undir grasi' og meiri' urð

myndu þið sleppa við að lesa þetta helvítis bull.


mynd sem passar við?