24 september 2004
Thegar madur hefur ekki bloggad neitt ógedslega lengi, thá finnst manni gjarnan ad madur geti ekki bloggad aftur fyrr en madur hefur eitthvad rosalega merkilegt ad segja. En eins og málshátturinn segir: "lélegt er skárra en ekkert" Thá sé ég ekki neina ástædu til thess ad bída eftir hinu fullkomna bloggefni og ætla thessvegna hér og nú ad skrifa eitthvad rosalega ómerkilegt.
Ég verd reyndar ad vidurkenna ad ég hef eins og stundum ekki hugmynd um hvad ég ætla ad skrifa. Efst í huganum eru tónleikar kvøldsins sem ég spiladi á gauknum ádan og voru thví midur í slakari kantinum. Ég byrjadi í fyrstutøktum fyrstalagsins á ad slíta streng, skipti í snarheitum yfir á aukagítarinn. Aukagítarinn fer svolítid ødruvísi undir fingrum thannig ad ég thurfti rosa mikid ad einbeita mér ad thví ad spila á gítar og gat ekki leift mér ad fíla mig jafnmikid og gefa af mér eins og ég hefdi annars gert auk thess er svo mjótt sánd úr stratocaster aukagítarnum. Nokrum løgum seinna slít ég aftur streng í aukagítarnum og fæ lánadan gítar hjá Inga (takk kærlega aftur Ingi), Theim gítar var ég ennthá óvanari og ég thurfti nánast 100% einbeitingu í ad spila á hann. Hvad haldidi ad hafi gerzt svo. Jón Thór slítur streng. Thar sem einungis var einn gítar eftir á svædinu med heilum strengjum thurftum vid ad slútta thessu einu lagi (reyndar uppklappslaginu) fyrr en ella. Vid afrekudum s.s. ad slíta thrjá strengi.
Thid veltid eflaust fyrir ykkur afhverju ég skrifa ekki thorn og eth. Thad er vegna thess ad ég er búinn ad fokkast mikid í tølvunni undanfarid, hún er ansi gømul og núna er ég ad nota styrikerfid sem fylgdi med og er ekki med íslenska stafi (allavega hef ég ekki fundid thá) En til allrar hamingju fann ég færeyskalyklabords stillingu thannig ad ég get skrfad allt nema thorn ed og ufsiloní.
Annars thá er ég búinn ad setja upp linux í tølvunni minni en ég kann ekkert mikid á hann og er ekki búinn ad fá hann til ad tengjast alnetinu.
Ég ætla ad enda thetta á tveimur rosa fyndnum brøndurum
brandari 1:
Heisenberg var ad keyra á autobahnanum og die polizei stoppar hann. "Können Sie ihr Geschwindigkeit" (vitid thér hrada ydar) spyr die polizei. "Nein, aber ich kennen meine Position" (nei, en ég veit stadsetningu mína).
(thysk thyding: altavist http://babelfish.altavista.com/tr)
brandari 2:
Heisenberg og Schrødinger voru ad keyra saman. "Ég held ad vid høfum keyrt yfir køtt." Segir Heisenberg. "Já, en vid getum ekki verid vissir um hvort hann sé daudur".

Mikil óvissa ríkir gjarnan um tilveru katta thegar Shrødinger er annarsvegar. Óvissur koma einnig mikid vid søgu thegar Heisenberg á í hlut
16 september 2004
Ég verð að viðurkenna að ég vonaðist eftir aðeins betri þátttöku í lesenda könnuninni en nú ætla ég að anna eftirspurninni og gera þátttakendum kannaninar til geðs.
Daglegt líf/skólinn
Já daglegt líf er í rauninni nánast það sama og skólinn þessa dagana. Ég ef búinn að vera frekar íðinn við námið, þrátt fyrir veikindi, það sem af er þessari viku og fátt annað hefur komist að. Við erum þá að tala um meðaltal upp á ca 13-14 tíma á sólarhring þótt ég hafi hætt snemma í gær (kl. 18) til að hitta hljómsveitina mína.
Pæling
Í gær sá ég kvikmyndina "Super size me" Ég hef grun um að það séu ekki hamborgarinir sem séu slæmir fyrir fólk heldur franskarnar og gosið. Eins og t.d. gaurinn sem borðaði nokkra Big Mac á dag, það kom aldrei fram að hann borðaði franskar og gos...
Meira kemur seinna. Þarf að fara að læra.
09 september 2004
Jæja lesandi góður, hvað langar þér að ég skrifi skemmtilegt hérna? Ég er mikið að pæla í því hvað fólk vill eiginlega lesa á þessari síðu.
Segið mér hvað viljiði lesa?
Viljiði djammsögur frá mér?
Viljiði vita hvað ég er að hlusta á?
Viljiði fá innsýn inn í mitt daglega líf?
Viljiði fleiri pælingar? Ég er að reyna að hafa þetta að mestu pælingabloggsíðu.
Viljiði að ég fræði ykkur um eitthvað sem ég hef þekkingu á. t.d. Hljóm- og tónfræði, gítarar, tölvur (það yrðu þá helst eitthvað binary dæmi), stærðfræði, rafmagnsfræði, íslensku rokktónlistar undirölduna, klassíska tónlist, jazz tónlist, hvernig heilla skal kvennfólk (hef mikla þekkingu á því sviði) o.s.fr.
Viljiði fleiri ljóð og vísur?
Viljiði að ég fækki myndum eða fækki færslum á hverri síðu (er síðan of lengi að byrtast)?
Viljiði að ég tali um hljómsveitina mína?
Viljiði að ég tali um kórinn sem ég er í (eins og sumir... nei úps ég er víst ekki í kór)?
Viljiði að ég tali um Háskólann?
Viljiði að ég læri eitthvað á við php og geri síðuna rosalega fancy?
annað? hvað? ___________
Segið mér hvað þið viljið!!!
(með því að nota kommenta kerfið)