25 október 2004
Í dag er ég orðin 21 og hálfs árs. Meira hvað maður eldist hratt. Maður er ekki fyrr orðin 19 að maður er 21 og hálfs. Ég er s.s. 258 mánaða í dag. Það fór samt alveg fram hjá mér að ég varð 256 mánaða fyrir tveimur mánuðum en það er mjög merkilegt þar sem það er 16 í öðruveldi sem er 100 mánaða á hexadesimal. Núna er ég 102 í hexadesimal og 100000010 í binary en 100 mánuðir í hexadesimal (256 í venjulega desimal kerfinu) er 100000000 í binary þannig að ég var að missa af alveg feitu stórafmæli. Passið ykkur á því að ef þið eruð meira en 2 mánuðum yngri en ég að muna eftir þessum mikilvæga degi þegar þið verðið 21 of 4 mánaða.
djöfull er þetta orðið nördalegt blogg hjá mér. ég verð að fara að setja eitthvað kúlhérna bráðum.
22 október 2004
Oft gefa smávægileg atriði góðahugmynd um þankagang fólks. Hér kemur eitt frá mér. Ég heyrði stúlku segja í síma "ég fæ spóluna hjá þér". Hvað er það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það heyrir orðið spóla? kannski sjónvarp, kvikmynd, geisladiskur, tónlist fyrir bílinn, nostralgískar blandkasettur, en hvað var fyrsta orðið sem mér datt í hug? Það var orðið þéttir (svona eins og spóla og þéttir, orkugeimandi rásaeiningar). Þar fenguð þið smá innsýn inn í hugarfarslegt ástand mitt. Þetta er kannski frekar tæpt að þessi færsla fái byrtingu en ég læt hana flakka.

Á þessari mynd má sjá hvernig spólur og þéttar ásamt viðnámum eru tengdir saman í því sem heitir crossover. Það er notað í hátalaraboxum til að dreyfa réttu tíðnihlutum hljóðmerkisins á réttu hátalarana í hátalara boxi þannig að hátalararnir vinni sem best saman (þannig að bassa hátalari fá bara lágu tíðnirnar í hljóðinu og tweeterinn fái háu tíðnir hljóðsins)..
20 október 2004
Ég er búinn að skoða nokkur blogg og víða bölva menn veðrinu og reyna að gera það að bloggefni. Ég fatta ekki hvernig Íslendingar verða alltaf jafn hissa þegar það fer að kólna allt í einu og hvessa og bölfa veðrinu. Er fólk ekki farið að fatta að þetta gerist oft hvert einasta ár. Við búum á Íslandi og svona er íslensktveður og ef fólk ætlar að skúffa sig á þessum yndislega árlega viðburði nenni ég ekki að hlusta á það. Mér finnst þetta veður viss stemning og finnst mikill fíliingur að klæða mig í mikið af fötum, þykka peysu, úlpu, húfu og vetlinga, vaða svo út í kuldan og fá kalda gusuna framan í mig, svo þegar maður kemur inn fær maður sér sjóðandi heitan kaffi og er tilbúinn að takast á við hvað sem er. Svo var ég að fatta eitt sviðugt við þetta rok og tímasetningu þess og setti það í kommentakerfi bloggara sem sem vildi meina að svona veður væri ekki mönnum bjóðandi.
rok = bylgjur í lofti = Airwaves
Þettta á sér allt röklegar skýringar.
Menn verða sífellt hissa þegar þeir sjá að það kemur eins veður eins og öll undanfarin ár
19 október 2004
Ha ha, náði ykkur ég er ekkert að fara að setja leyndó á internetið, hvað haldiði að ég sé? Ég hef s.s. ekkert ofur merkilegt að segja frá. Tékkið endilega á Isidor síðunni sem ég er búinn að vinna svolítið í undanfarið en tékkið endilega aftur seinna þegar ég er búinn að búa til gesta bók. Ég er ekki búinn að vera nógu duglegur við að stunda námið mitt undan farið og eru allar námshvatningar velþegnar. Reyndar held ég að ég stofni bara til keppni.
Keppni
Keppnin gengur út á að koma með bestu námshvatninguna. Sá sem kemur með bestu hvatninguna verður sigurvegari. Sigurvegarinn fær nafnið sitt skráð undir liðnum "Sigurvegarar" sem ég mun setja upp á þessa síðu seinna. Nú þegar hafa Andir Ó og Svanhvít L I unnið sér sæti á þessum lista. Svo mun ég hafa fleiri keppnir og fólk getur safnað stigum. Helvíti fær maður sniðugar hugmyndir við og við.
Námshvatningarnar skal setja í kommenta kerfið.

Í útlöndum raða stúlkur í búningum sér gjarnan í pýramíða til að hvetja íþróttamenn.
15 október 2004
Nótt eina vaknaði ég við að ég heyrði eitthvert hræðilegt væl. Þetta væl skar virkilega í eyrun og mér datt fyrst í hug að einhver væri að brennimerka barn eða stinga prjóni í augun á ketti. Ég þorði ekki að hreyfa mig því ég var hræddur um að ég yrði þá ef til vill næsta fórnarlambið. Ég fór að heyra vælið betur eftir því sem leið á nóttina og sífellt varð vælið ógnvænlegra og sífellt sá ég fyrir mér ógeðslegri aðstæður sem orsökuðu þetta væl. Það var ekki séns að ég gæti með nokru móti sofnað. Loksins þegar ég þorði að hreyfa mig, setti ég sætasta og saklausasta diskinn sem ég gat fundið í spilaran og hækkaði vel til að reyna að yfirgnæfa vælið. Það dugði ekki til og ég heyrði alltaf þetta ógeðslega ískur væl, ég safnaði að lokum kjarki til að kíkja út um skráargatið á herberginu mínu. Það var slökkt frammi á gangi en ég gat séð að það var kveikt ljós í stofunni. Ég varð fyrir sjokki, það var eitthvað hræðilegt að gerast í stofunni minni. Líklega einhver djöladýrkun og kukl eða fórn á lifandi hreinum meyjum. Þar sem ég vissi að ég gæti hvort sem er ekki sofið rótt og vissi að ég gæti hætt að hugsa um þetta hræðilega ískurvæl ákvað ég að það yrði líklegast best að mæta óttanum og vera hetja næturinnar með því að fara einfaldlega inn í stofu og gá hvaða voða verk væri verið að fremja þar. Vælið varð en greinilegra þegar ég kom fram á gang og ég var næstum því búinn að pissa í mig af hræðslu þannig að ég dreyf mig á klósettið áður en ég myndi fara inn í stofu að takast á við óttann. Þá var komið að því. Ég opnaði hurðina og upplifi mína verstu lífsreynlu sem ég hef nokvurn tíman upplifað. Ég mun aldrei geta horft á stofuna sömu augum og það fer alltaf hrollur um öll jól þegar fjöskyldan bregður frá vananum og borðar inn í stofu. Ég þurfi að fá margra tíma áfallahjálp eftir þetta og fyrst núna byrjaður að komast í sama farið og ég var í. "Hvað var inn í stofu?" er spurning sem brennur eflaust á vörum ykkar. Það skal ég segja ykkur. Þar var Kenny G að æfa sig og semja lög á næstu plötu sína.
.jpg)
Kannski ekki alveg viðeigandi myndskreyting, ég leitaði að vampire í myndaleit google til að finna við eigandi mynd en fann þessa mynd í staðin sem mér finnst ansi svöl