03 nóvember 2004
Ég sendi Nælon stúlkunum tölvubréf. Hér getiði séð það:
Kæru Nælon stúlkur og aðstandendur,
Ég sá ykkur flytja lagið "Einhverstaðar..." án undirleiks í einum þætti úr sjónvarpsþáttaröðinni ykkar. Lagið var sérlega fallega sungið og útsetningin einstaklega skemmtileg en það stakk mig svolítið í eyrun að Nælon flokkurinnn smellti fingrunum með á slagi 1 og 3 í taktinum. Áherslur á þessi taktslög gera lög gjarnan styrð og væru helst viðeigandi í barokk tónlist (sem er tónlistar stefna sem ég þori að fullyrða að sé fjarlæg fjölbreyttu tónlistar stefnum Nælonflokksins) eða taktmæla æfingum.
Ég tel að fallegra hefði verið að smella fingrunum á slagi 2 og 4 (það er gjarnan kallað back beat). Þannig hefði lagið grúvað betur og orðið meira lifandi.
Ég mæli með því að Nælon flokkurinn taki sér smá stund í að æfa að smella fingrunum á 2. og 4. taktslagi til að ná betri hrynþroska og almennri takttilfinningu. Einnig er mjög góð æfing að setja af stað taktmæli og skynja slög hans sem 2. og 4. taktslag (erfiðari æfing en mjög góð).
Ég vona að þið takið þessari ábendingu ekki sem móðgun á ykkar tónlistar hæfileika eða neitt slíkt. Ég er bara að benda ykkur á einn hlut sem betur mætti fara á meðan það eru miklu fleiri hlutir sem eru frábærlega vel gerðir.
Ég vill líka nota tækifærið og óska ykkur til hamingju með nýútkomnu breiðskífuna ykkar og þetta allsvakalega markaðslegaafrek sem þið hafið unnið á þessum stutta tíma.
Ekki hika við að hafa samband við mig ef ykkur vantar fleiri fagleg tónlistarráð.
kær kveðja,
Orri Tómasson
verkfræðinemi og gítarleikari
www.theisidors.com