29 desember 2004
Ég og Halldóra vorum í gær á Súfistanum að lesa blöð þegar Jón Þór Birgisson (bróðir Lilju Birgis), sem er í hljómseitinni Sigurrós sest á næsta borð við okkur. Stuttu seinna hringir síminn hans og hann fer frá borðinu til að tala í síman og skilur dótið sitt eftir. Mér datt þá í hug að það yrði rosalega sniðugt að stela húfunni hans, hún var það nálægt okkur að ég þyrfti aðeins að rétta út höndina til að ná að grípa hana. Húfur eru meira að segja eitt af einkennum hans þannig að það væri mjög fyndið að eiga þessa húfu sem ég held að hann sé oft með. Ég gæti líklega líka fengið ágætis summu fyrir hana á Ebay ef ég gæti sannfært væntanlega kaupendur að húfan væri ósvikin "Jónsa-húfa". En það er jú ljótt að stela eigum fólks ef það mun sjá eftir þeim (það er nokkvurnvegin mín siðfræði) þannig að ég gat ekki réttlætt þessi eigna skipti fyrir sjálfum mér.

Jónsi með húfu
21 desember 2004
búinn í prófum
Ég fór í seinasta prófið í morgun og er núna loksins búinn í prófum. Ég virkilega hata að vera í prófum.
Jólakötturinn - tónleikar
Á morgun, sem er miðvikudagurinn 22. des, er ég að fara að spila á tónleikum. Mér þætti afskaplega vænt um ef einhver myndi sjá sér fært að mæta og ég yrði mjög svektur ef enginn myndi mæta. Og nei þetta er ekki of dýrt fyrir þig og nei þú ert ekki of upptekin(n) eða of góður fyrir þetta.
jólaundirbúningur og jólafrí
Núna á ég eftir að kaupa jólagjafir og taka til, fara aftur í bað, raka mig og fara í fínu fötin. Því miður gafst mér ekki tími til að búa til jólakort í ár vegna prófa (ég var ekki komin í jólaskapið til að gera jólakort í október eða nóvember, enda er ég hvorki ikea eða kringlan). Reyndar sendi ég engin jólakort í fyrra heldur (man ekki afsökun).
Ég er í fríi þangað til 10 janúar og hef tíma þá til að hitta fólk þannig að ef þú ert að fara halda boð, afmæli eða hitting endilega hafið samband við mig.
jólagjafaóskalistinn
Mér finnst nokkuð merkilegt að það er eiginlega ekkert sem mig langar í í jólagjöf. (ég tel ekki ipod, nýja tölvu, nýjan gítarmagnara, bíl og íbúð ekki eiga heima í mengi hluta til að langa í í jólagjöf). Þegar ég á ekki pening þá einfaldlega leifi ég mér ekki að langa í neitt (enda frekar gagnslaust að vera að langa í eitthvað sem maður getur ekki eignast). Reyndar langar mann alltaf í nýjar plötur og ný föt, en maður treystir ekki öðrum til að finna slíkt fyrir mann, maður vill velja sjálfur. Sokkar og nærbuxur er því það eina sem príðir jólagjafaóskalistann minn. Það er eitthvað sem maður getur endalaust notað. Þess má geta að mamma mín segir að Pabbi sinn hafi alltaf svarað "sokkar og nærbuxur" þegar hann var spurður hvað hann langaði í í jóla- eða afmælisgjöf.
skemmdur eftir prófalestur
Eftir að ég kom heim úr prófinu þá lagði ég mig. Ég man að mig dreymdi að Hómer Simpson og einhver annar var að veiða með veiðistöng en svo togaði veiðistöngin þá ofan í vatnið sem þeir voru að veiða í og svo togaði veiði stöngin þá upp úr vatninu aftur. Það fyndna var að þegar þeir komu upp úr vatninu þá höfðu þeir breyst í tíðnimyndir sínar (Fourier- eða Laplace- varpast)
10 desember 2004

Þessu má enginn missa af. Þarna fáið þið tækiðfæri á að sjá 3 af allra allra uppáhaldshljómsveitunum mínum á þessu landi auk hljómsveitarinnar sem ég er í, fyrir hlæilegt verð.
Taka skal fram að engin af listarmönnunum sem koma fram taka þóknum/laun eða fá greitt fyrir kostnað sem þeir verða fyrir vegna tónleikana eins og gjarnan tíðkast á jólatónleikum þar sem ágóði er látin renna til góðgerðarmála.
Í stuttumáli, bestu tónleikarnir sem völ er á í desember á besta verðinu. Nokrar af allra bestu hljómsveitum landsins (að mínu og margra annara mati) á einum besta tónleika stað landsins.
Það er virkilega heimskulegt að láta þetta einstaka tækifæri framhjá sér fara.