27 apríl 2005

Frönsk mynd


Ég fæ oft innblástur og blogghugmyndir af því að skoða annara manna blogg. Í þetta skiptið fékk ég innblástur á Matta bloggi og ætla ég að apa eftir Matta og gera svona franska bíómynd eins og hann gerði á sitt blogg.

Kannski bæta því við að í augnablikinu hef ég ekki hugmynd um hver þessi Matti er. Ég hélt þetta væri Matti í Bob en við nánari athuganir þá er þetta örugglega ekki hann, og ég kannast heldur ekki við neinn á linka listanum hans. Hvernig fann ég fann ég eiginlega bloggið hans?


Fyrsti þáttur:

Nadine Gaultier og Jean-Piere L'Oreal eru stödd á Veitinga húsi í 7unda hverfi í Paris.

Þjónn kemur upp að borðinu.
Þjónn: Bon soire monsieur et madmoiselle.
(góða kvöldið herra og ungfrú)
Voulez vous quelquechose de boire quand vous lisez la ménu.
(viljið yður eitthvað að drekka meðan þið skoðið matseðilinn).
Nadine: Oui monsieur je voudres un merlot rouge.
(Já herra ég myndi vilja Rauðvín)
Jean-Piere (grípur fram í): Merlot??? quel paysan, Si Henri IV c'etendra il se tournera a son tombe. Nous voulons votre mailleur pinot-noir de la Cote d'Or, preferable dix-neuf-cent-soixante-dix-sept s'il vous plait monsieur et m'escuse pour la paysan je dine avec.
(Rauðvín??? Þvílíkur sveitalubbi, Bjarni Ben myndi snúa sér í gröfinni ef hann heyrði þetta. Við ætlum að fá rauðvín herra og afsakaðu sveitalubban sem er í fylgd minni).
Nadine: Oui monsieur, pardon moi. Ce mon premier fois a la ville. J'ai jamais dans la vie vu la tour Eiffel.
(Já herra afsakið mig, þetta er í fyrsta skipti sem ég kem til borgarinnar. Ég hef aldrei séð hljómskálann).
Þjónn: Je crois j'ai un petit surpris pour vous madmoiselle.
(ég held ég hafi smá glaðning handa yður fröken)
Þjóninn bendir stúlkunni út um gluggan þar sem hún sér Mannvirkið.
Nadine: Oh la la, ce Magnifique.
(öfga flott)
Jean-Piere verður litið á málverk á vegnum og spyr þjóninn:
Jean-Piere: Cette peintur, cette un Rembrant orginal?
(Er þetta ósvikið málverk eftir Tolla?)
Þjónninn: Excactement monsieur.
(nákvæmlega herra).

Ég læt þetta gott heita. Restina af sögunni fjallar um flókin ástaþríhyrning og en meiri mat og vín, kynlíf og auðvitað sígarettu reikingar. Matti útfærði þetta svo vel í sinni sögu að ég ætla ekki einusinni að reyna.


25 apríl 2005



Langar einhverjum að stofna með mér hljómsveit sem heitir Various Artists

við getum gefið út plötur sem heita:
Super summer hits 7
Love songs by the ocean
Mega party 31
Romantic dinner songs
Rasta Reggie
Eternal guitar solos


Og svo nokkrar sem eru ekki jafn hefðbundnar og gætu heitað:

Perfect Suicide songs
Fólk sem fremur sjálfsmorð á líka pening sem það getur eytt í tónlist.

groovie sexy sex
Lög til að hlusta á meðan maður gerir kynlíf.

Best of the best best ofs
Bestu lögin af bestu best of plötunum.

Neighbour love
Þarftu að ná þér niður á nágrannanum. Kauptu þessa plötu, stilltu hana í botn á repeat og farðu svo í ferðalag.

The roof is on fire
Plata sem maður spilar í skriðdrekanum meðan maður gerir innrás í Írak eða eitthvað annað land.


Lagið á heilanum:
Hvar er Guðmundur? - Johnny Poo



Áttu nokkuð plötuna Mega Party 31 með hljómsveitinni Various Artists


24 apríl 2005

Ég setti Téið í teið


Einu sinni fyrir langa löngu var til drykkur sem hét e. Drykkurinn þótti mjög góður en átti undir högg að sækja vegna óhentugs nafns. Maður að nafni Torri langaði að gera eitthvað til að bjarga drykknum frá glötun og útrýmingu. Hann ákvað að taka fyrsta stafinn í nafninu sínu og gefa e hann og síðan þá hefur e heitað te og Torri heitað Orri.


Eftir að téið kom í teið hefur það notið gífurlegra vinsælda.

Lagið á heilanum:
Suicide is painless - lady and bird


16 apríl 2005

Sími til sölu


Ég hef tekið ákvörðum um að selja vinum mínum símann mínn með grunn símanúmerinu mínu. Síminn minn er metin á bilinu 5-20 þúsund króna.
Síminn minn verður seldur þrem aðilum hið minsta og má enginn einn aðili eiga meira en 45% í símanum mínum.

Þegar gengið hefur verið frá sölunnu mun ég greiða nýju eigendunum himinháar upphæðir fyrir afnot af honum.



Sími til sölu
kostar eina tölu


12 apríl 2005



Djöfull sökkar að skoða myndir á internetinu af fólki sem er í útlöndum og hefur rosalega gaman.

Afhverju getur maður ekki fundið myndir af einmanna fólki við Kringlumýrarbrautina*, nýbúið að missa af strætó, svangt, kalt og blautt í fæturnar í sóðalegu veðri.

* Í strætóskýlinu á Kringlumýrarbrautinni sem er við suð-vesturhorn, gatnamóta hennar við Miklubraut. Það er leiðinlegasta strætóskýli í heiminum.


Hugsar fólk ekkert hvernig öðru fólki líður þegar það setur svona myndir á netið?


10 apríl 2005

Fílíngur Dagsins


Ég ætla að apa eftir Vali formanni og gera einn svona fíling dagsins.



Þetta er Karaoke fílingurinn. Þarna er ég að syngja eitt uppáhalds lagið mitt af mikilli innlifun.