14 mars 2007
Hafiði heyrt um lögfræðinginn sem hannaði bíl?
Hann hannaði hann þannig að ef bíllinn væri ekki búinn að lenda bílslysi eftir 7 ár þá hættu loftpúðanir, öryggisbeltin og annar öryggisbúnaður að vera virkur þar sem engin fordæmi væru fyrir að þessi öryggisbúnaður gerði eitthvað gagn.
...Síðan klessti hann á og dó.
Einu sinni var lögfræðingur. Dag einn kviknaði smá eldur í húsinu hans. Hann gat ekki gripið til þess ráðs að slökkva eldinn með slökkvitækinu sínu sem hann hafði átt um skeið þar sem það voru ekki til nein fordæmi fyrir því að hann notaði slökkvitækið til að slökkva eld í húsinu sínu.
... Húsið hans brann upp til agna og hann brann inn í því og dó (ásamt konununni sinni og hundinum þeirra).

Sögusagnir eru á kreiki um að þessi lögfræðingur hafi byrjað á skissum og teikningum að hönnun íslensks hermannajeppa.
Útskýring: Það er stefna hjá mér að gera bloggið mitt sem aðgengilegast og skiljanlegast og þessvegna ætla ég að útskýra þessa færslu.
Lögfræðingar eru með fordæmi á heilanum. Eina það sem lögfræðingar hugsa er: fordæmi, fordæmi, fordæmi, fordæmi... Sumir þeirra vilja til dæmis meina að forsetinn hafi ekki neitunarvald, þótt að það sé ákvæði þess efnis í stjórnarskránni, þar sem engin fordæmi eru/voru til um að því sé beitt (þar afleiðandi eru til lögfræðingar sem vilja meina að fordæmi vegi meira en stjórnarskráin).