24 september 2008
Það er allstaðar verið að skrifa um tengslanet eins og facebook og myspace og því óþarfi að skrifa enn einn innganginn um þau þar sem fyrirbærið er útskýrt.
Það sem margir elska við tenglanet er að njósna um fólk og fylgjast með því úr fjarska. Þau hafa þó þann galla að hver og einn ræður að miklu leiti hvaða upplýsingar eru birtar um sig og skrifar þær að miklu leiti sjálfur.
Ég tel að líklegt til vinsælda væri tengslanet þar sem upplýsingarnar um hvern og einn eru allar skrifaðar af öðrum.
Á þessari síðu minni er ég t.d. með ágætan lista yfir fólk sem ég þekki sem á bloggsíður og tek að auki fram hvernig ég þekki viðkomandi. Þetta má taka skrefinu (eða mörgum skrefum) lengra þar sem maður myndi skrifa slúður og ýmsar staðreyndir um viðkomandi.
Facebook hefur þó reyndar þann kost að hver sem er getur sett inn mynd af hverjum sem er sem hver sem er getur síðan séð...