17 október 2008

Hvar eru peningarnir?


Spurningunni um hvar peningarnir sem fólk lagði inn í íslenska banka út um allan heim er fljótt svarað. Þeir voru notaðir til að borga örfáum stjórnendum bankana laun, bónusa og starfslokasamninga.
Ætla íslensk stjórnvöld að leyfa þessu fólki að komast upp með að taka ógeðslega mikið af peningum út úr fyrirtækjum (bönkum í þessu tilfelli) í formi launa, bónusa og starfssamninga, vitandi það að fyrirtækið á eftir að fara á hausinn. (það þóttust allir vita vita það að þetta gæti ekki gengið lengi).
Það sem mér þætti réttast af stjórnvöldum að gera er að keyra í flýti í gegn nýja löggjöf (hún má alveg heita hriðjuverkalöggjöf mín vegna) sem heimilir að fjármunir þessara einstaklinga séu frystir og að hinir raunverulegu sökudólgar séu færðir til saka og peningarnir sem þeir náðu sér í með þessum löglegu fjársvikum sé komið í hendur réttra eigenda (þ.e. fólkið sem átti spariféð).

Það er líka mjög mikilvægt að íslensk stjórnvöld bregðist hratt við og leiðrétti þann miskilning að það sé íslenskt þjóðerni, íslenska þjóðin, og íslenska ríkisstjórnin sem er vondi kallinn sem ber að hata vegna ævisparnaðartapi. Það þarf að koma fólki bæði hér heima og erlendis í skilning um hverjir eru hinir raunverulegu vondukallar.

Að lokum legg ég til að við íslenskir ráðamenn drífi sig í að senda beiðni til Dana um að hvort þeir séu ekki til í að senda okkur aftur farm af baunum ef það reynist rétt að matvælaforðin sé að fara að klárast.